Í mars flutti Icelandair 221 þúsund farþega í millilandaflugi og er það 21% aukning milli ára.

Framboðsaukning hjá félgainu á milli ára nam 20% og sætanýting var 84.0% og jókst um 1,4 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í mars samkvæmt tilkynnningu frá félaginu.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í mars og fjölgaði um 2% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 1% samanborið við mars 2015.

Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 8% á milli ára og seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 9% miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 81,2% samanborið við 78,8% í fyrra.