Halli á vöruviðskiptum við útlönd á fyrstu tveimur mánuðum ársins 201 nam 21,4 milljörðum króna. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 69,1 milljarð króna en inn fyrir 90,5 milljarða króna. Halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 21,4 milljörðum króna. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptum óhagstæð um 3,5 milljörðum á gengi hhvors árs. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 17,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Í febrúar voru fluttar út vörur fyrir 31,6 milljarða króna og inn fyrir 44,3 milljarða króna fob. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti því óhagstæð um 12,7 milljarða króna. Í febrúar 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,9 milljarða króna á gengi hvors árs.

„Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 19,3 milljörðum króna lægra, eða 21,8%, á gengi hvors árs, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 61,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,8% lægra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 31,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 43,3% lægra en á sama tíma árið áður, vegna verðlækkunar, auk þess sem reikna má með að áhrifa af verkfalli sjómanna gæti enn í tölunum,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Hins vegar var verðmæti vöruinnflutnings 1,4 milljörðum króna lægra, eða 1,6% á gengi hvors árs. Samdráttur var aðallega á fjárfestingavörum og neysluvörum en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.