Umsóknir um makrílveiðileyfi eru komnar vel yfir 300 og þar af eru um 220 umsóknir um leyfi til að veiða úr potti fyrir handfæri og línu, samkvæmt upplýsingum sem Fiskifréttir fengu frá Fiskistofu. Greint er frá þessu í Fiskifréttum. Handfærapotturinn í ár er 3 þúsund tonn. Á síðasta ári veiddu 17 bátar makríl á handfæri, samtals um 1.100 tonn. Fleiri bátar sóttu um leyfi en fóru aldrei á veiðar. Handfæraveiðar á makríl eru ólympískar veið- ar, þ.e. pottinum er ekki skipt niður á báta.

Óvíst er hve margir handfærabátar ætla sér raunverlega að veiða makríl. Í hópi umsækjenda eru fjölmargir bátar sem hafa einnig sótt um leyfi til strandveiða í maí til ágúst. Þeir mega ekki stunda makrílveiðar á sama tíma en geta skipt yfir á makríl í byrjun september þegar nýtt fiskveiðiár hefst.

Nánar er fjallað um málið í Fiskifréttum, sem komu út með Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér .