Fjármálaeftirlitið (FME) auglýsti nýlega 5 lausar stöður hjá stofnuninni en umsóknarfrestur rann út í vikunni.

Alls sóttu 255 einstaklingar um stöðurnar 5 en um tímabundnar ráðningar er þó að ræða, eða til áramóta.

Samkvæmt upplýsingum frá FME er nú unnið úr umsóknum og ráðist verður í ráðningar innan skamms.