Iðnaðarráðuneytið hefur samið við Vistorku um stuðning sem tryggja munu samfellu í vetnisverkefnum á Íslandi. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að stefnt er að því að verja 225 milljónum króna á þremur árum í verkefnið.

Verður 25 milljónum króna af fjárlögum þessa árs til ráðstöfunar í verkið. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins verður seinni greiðsluml úthlutað á árunum 2008 og 2009 samkvæmt nánari ákvörðun Alþingis. Á móti koma framlög frá erlendum samstarfsaðilum, innlendum orkufyrirtækjum og ýmsum öðrum aðilum.

Jafnframt er fyrirhugað að bera niðurstöður rannsókna á vetnisbílum saman við hliðstæðar rannsóknir á öðrum vistvænum bílum.

Hið nýja verkefni kallast SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland). Markmið þess er m.a. að koma af stað rekstri á 20-30 vetnisbílum og setja vetnisljósavél um borð í ferðamannabát á sjó.

Út er komin áfangaskýrsla Vettvangs um vistvænt eldsneyti. Megintillaga í skýrslunni lýtur að því að endurskoða reglur um opinber gjöld af ökutækjum til að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum.

Vettvangur um vistvænt eldsneyti er verkefni á vegum Orkustofnunar og er viðfangsefni hans hvað eina er lýtur að því að gera Íslendinga síður háða innfluttu eldsneyti en nú er og nýta innlenda orku í staðinn. Að stjórn Vettvangsins koma sex ráðuneyti; iðnaðarráðuneyti, utanríkisráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti, umhverfisráðuneyti, samgönguráðuneyti og fjármálaráðuneyti

Meginmarkmið þessara tveggja verkefna er að leita leiða til að nýta innlenda orkugjafa í stað innflutts jarðefnaeldsneytis í samgöngum landsmanna og draga um leið úr losun gróðurhúsalofttegunda. Keppt er að því að fá niðurstöður um það hvers konar vistvæn tækni henti best í samgöngutækjum á Íslandi. Jafnframt eiga verkefnin að afla stjórnvöldum þekkingar og aðstoða þau við stefnumótun og æskilega forystu á þessu sviði.