Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 9,4 milljörðum í júli. Samdráttur varð á aflaverðmæti milli ára um 2,8 milljarða eða ríflega 23% samanborið við júlí 2015. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands .

Aflaverðmæti botnfisks nam 5,7 milljörðum og dróst saman um 13% frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávartegunda var 2,4 milljarðar sem er um 40% minna en í fyrra. Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 970 milljónum sem er samdráttur um 26% milli ára.