Vörur voru fluttar út fyrir 50,3 milljarða króna í maí og inn fyrir 47,9 milljarða króna. Vöruskiptin í maí voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna. Í maí í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 6,5 milljarða króna á gengi hvors árs. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Fyrstu fimm mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 224,2 milljarða króna en inn fyrir 219,4 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 4,8 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um tæpa 24 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 19,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.