Tuttugu og fjórir einstaklingar sóttu um stöðu rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar á Ísafirði.

Þetta kemur fram á vef Bæjarins Besta á Ísafirði en Elín Hlíf Helgadóttir, starfsmannastjóri Húsasmiðjunnar, segir umsóknirnar vera framar hennar vonum en sjálf átti hún von á að fjöldi umsókna yrði í kringum fimmtán.

Hún segir heimamenn hafa sýnt starfinu töluverðan áhuga en einnig hafi borist þónokkrar umsóknir frá höfuðborgarsvæðinu.

Sjá nánar vef Bæjarins Besta.