Frjáls fjölmiðlun ehf. var rekin með tæplega 240 milljóna króna tapi í fyrra, en félagið er útgefandi DV, dv.is og fleiri undirmiðla. Afkoma, fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var neikvæð um 214 milljónir króna og rekstrartekjur námu 380 milljónum króna. DV greinir frá þessu.

„Í lok síðasta árs var ráðist í umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir hjá Frjálsri fjölmiðlun sem munu skila sér að fullu þegar afkoma yfirstandandi árs liggur fyrir. Breytingar til batnaðar eru miklar milli ára. Árið 2018 var fyrsta heila rekstrarár félagsins og það það tók tíma að ná tökum á rekstrinum og grípa til nauðsynlegra aðgerða,“ hefur DV eftir Karli Garðarssyni, framkvæmdastjóra Frjálsrar fjölmiðlunar. „Félagið í dag er allt annað og öflugra en á síðasta ári.“

Þá segir Karl jafnframt að afkomutölur flestra einkarekinna fjölmiðla bendi til þess að staðan sé mjög alvarleg og það geti grafið undan því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í þjóðfélaginu. Því sé áríðandi að bregðast skjótt við til að styrkja lýðræðislega umræðu í landinu.