Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerðir um heildarkvóta Íslands í kolmunna og norsk-íslenskri síld fyrir árið 2019. Ekki er í reglugerðinni gert ráð fyrir heimild til handa íslenskum skipum til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld í færeyskri lögsögu árið 2019.

241.000 tonna kvóti fyrir kolmunna

Ráðlögð heildarveiði á kolmunna árið 2019 samkvæmt ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) er 1.143.629 tonn og er það tæplega 18% lækkun frá 2018.

Hlutur Íslands samkvæmt kolmunnasamningi frá 2005 var 16,23%. Undanfarin ár hafa bæði Færeyjar og Evrópusambandið aukið hlut sinn í kolmunna um ríflega 47%. Ákvörðun Íslands um 241.000 tonna kvóta miðast við vegna meðalhækkun annarra ríkja og er hlutdeildin því 21,1%.

97.996 tonna kvóti fyrir norsk-íslenska síld

Ráðlögð heildarveiði á norsk-íslenskri síld árið 2019 er 588.562 tonn og er það 53% aukning frá 2018. Þessi aukning er tilkomin þrátt fyrir lakari stöðu stofnsins og skýrist hún af nýrri langtímanýtingarstefnu sem felur í sér hærri veiðidánarstuðul og lægri viðbragðsmörk fyrir hrygningarstofninn. Tekið skal fram að Ísland varaði við þessari breytingu á strandríkjafundi í haust.

Hlutur Íslands samkvæmt síldarsamningi frá 2007 var 14,51%. Á síðustu tveimur árum hafa Norðmenn aukið hlutdeild sína úr 61% í 70%. Ákvörðun Íslands um 97.996 tonna kvóta samsvarar hlutfallslegri hækkun Norðmanna.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Það er vissulega áhyggjuefni að ofveiði úr báðum þessum stofnum skuli halda áfram, sérstaklega úr síldarstofninum. Ísland hefur tekið mikið frumkvæði í því að reyna að þoka áfram málum varðandi samninga milli strandríkjanna í þessum stofnum og við munum halda því áfram. En meðan ekki næst samkomulag hljótum við að verja hlut Íslands eins og kostur er og við það miðast þessar kvótaákvarðanir.“