Félagið LL eignir hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu . Engar eignir fengust upp 245,9 milljóna króna kröfur á hendur félaginu.

Eigandi félagsins er Lára Lúðvíksdóttir og Sigurður G. Guðjónsson situr í stjórn þess.

Félagið sem var stofnað árið 2000, í þeim tilgangi að fjárfesta í hlutabréfum og öðrum verðbréfum, var tekið til gjaldþrotaskipta í maí síðastliðnum.