Tölfræðihandbók Hagstofu Íslands, Landshagir, sem gefin hefur verið út samfleytt frá árinu 1991 mun ekki lengur koma út. Á síðasta ári hætti hún að koma út í prentaðri útgáfu, en nú hefur stofnunin tekið ákvörðun um að leggja útgáfuna að fullu niður. Þar með er sögu þessarar 25 ára ritraðar formlega lokið.

„Víða um lönd hefur sala á hagtöluárbókum dregist verulega saman og er útgáfa Landshaga þar engin undantekning. Breytt miðlun hagtalna er helsta ástæða þess að dregið hefur úr sölu hagtöluárbóka, en Landshagir voru fyrst gefnir út áður en veraldarvefurinn náði vinsældum,“ segir í fréttatilkynningu stofnunarinnar.

„Nú miðlar Hagstofan miklu magni upplýsinga á netinu og hefur vefur stofnunarinnar nýverið verið endurbættur. Þar birtast um 500 fréttatilkynningar á ári og gagnasöfn með um eitt þúsund töflum standa þar öllum opin.

Notendur geta sótt þessar upplýsingar í snjallsíma og spjaldtölvur sér að kostnaðarlausu og leggur Hagstofan áherslu á jafnan aðgang allra notenda að gögnunum. Flestar fréttatilkynningar og töflur eru birtar bæði á íslensku og ensku.

Það efni sem birt var í Landshögum verður áfram aðgengilegt á vef Hagstofunnar og rennur saman við annað talnaefni sem þar er.“