Á þriðja ársfjórðungi 2008 voru að meðaltali 4.800 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,5% vinnuaflsins.

Atvinnuleysi mældist 2,6% hjá körlum og mjög svipað eða 2,5% hjá konum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands þar sem í dag eru birtar tölur um atvinnuþátttöku og atvinnuleysi á 3. ársfjórðungi 2008.

Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 4,8%, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Á þriðja ársfjórðungi 2007 mældist atvinnuleysi 2,1%. Atvinnuleysi mældist þá 1,6% hjá körlum og 2,7% hjá konum. Atvinnuleysi var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára eða 5,2%.

Atvinnulausir teljast þeir sem ekki hafa atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið vinnu sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar, sem eru ekki í vinnu en eru í námi, flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Þá kemur fram að 33,5% atvinnulausra höfðu leitað að vinnu í innan við einn mánuð og 20,3% höfðu fengið vinnu sem hefst síðar.

Af þeim sem voru atvinnulausir á þriðja ársfjórðungi 2008 voru nær 1.000 búnir að finna vinnu sem hefst síðar, eða 20,3%. Tæp 1.600 manns eða 33,5% voru búnir að leita skemur en einn mánuð að vinnu. Af þeim sem voru atvinnulausir höfðu um 300 manns, eða 5,7% leitað að vinnu í 6 mánuði eða lengur.