Hagnaður Sparisjóðs Ólafsvíkur á síðasta ári varð 25,3 milljónir króna eftir skatta samanborið við 6,4 milljóna króna tap á árinu 2003. Arðsemi eigin fjár var 14.9%. Innlán námu 939 milljónum sem er rúmlega 30% aukning frá fyrra ári. Eigið fé nam 195,9 milljónum króna í lok ársins 2004, og CAD-eiginfjárhlutfall var 18,8%.

Stofnfé sparisjóðsins nam í árslok 147 þús. kr. og skiptist það á 46 aðila sem allir eiga jafnan hlut.