Umsóknarfrestur um embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti rann 20. nóvember sl. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu bárust 25 umsóknir um stöðuna, þar af þrettán konur og tólf karlar. Umsækjendur eru:

Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur,

Dr. Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands,

Ásta Magnúsdóttir, skrifstofustjóri hjá EFTA í Brussel,

Belinda Þurý Therault, MA, MBA,

Bjarni Daníelsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps,

Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður,

Dr. Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða HÍ,

Gísli Þór Magnússon, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Guðlaug Úlfarsdóttir, kennari,

Dr. Guðmundur K. Birgisson, lektor á menntasviði Háskóla Íslands,

Guðrún Gísladóttir, framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands,

Halldór Árnason, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti,

Helga Erla Þórisdóttir, aðallögfræðingur Lyfjastofnunar,

Karitas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Lárus H. Bjarnason, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð,

Dr. Rósa Gunnarsdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Sigurbjörg Jóhannesdóttir, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur,

Sigurður Hróarsson, fyrrverandi leikhússtjóri,

Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Sólrún Halldórsdóttir, framkvæmda- og fjármálastjóri,

Dr. Stefán Baldursson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti,

Þórhallur Vilhjálmsson, skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti og

Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti.