Rúmlega helmingur stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins telur að laun muni standa í stað á næstu sex mánuðum. Um 52% stjórnenda telja svo vera en 45% stjórnenda telja að laun muni hækka.

Samtök atvinnulífsins greina frá könnuninni á vefsíðu sinni. Að meðaltali telja stjórnendur að laun hækki að jafnaði um 1,4% á næstu 6 mánuðum. Í byggingariðnaði er ekki reiknað með neinum hækkunum en í flestum atvinnugreinum er reiknað með hækkunum á bilinu 1-1,5%.

Segir að lítill munur sé á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni og heldur ekki eftir því hvort fyrirtækin selji vörur til útlanda eða ekki.

62% stjórnenda telja að laun starfsmanna hækki á milli áranna 2009 og 2010 en 31% að laun standi í stað.

Fjórðungur hyggst fækka starfsmönnum

„Líkt og í fyrri könnunum telja nær allir aðspurðra sig hafa nægt starfsfólk og einungis 8% búa við skort á starfsfólki. Ráðningaráform stjórnenda benda til þess að það syrti í álinn á næstu 6 mánuðum þar sem 25% þeirra hyggjast fækka starfsmönnum en 17% fjölga.

Mikill meirihluti fyrirtækja býr við vannýtta framleiðslugetu þar sem 70% þeirra telja ekkert vandamál að bregðast við óvæntri eftirspurn eða sölu. Nánast allir svarendur búast við því að þetta ástand verði viðvarandi næstu 6 mánuði,“ segir á vef SA.