Alls voru 149 fyrirtæki sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins tekin til gjaldþrotaskipta í mars síðastliðnum. Af þeim voru 25 með virkni á fyrra ári, það er annað hvort með launþega samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 36% fækkun frá mars á síðasta ári. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar .

Af 290 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2021 voru 49 með virkni á fyrra ári sem er um helmingslækkun frá sama tímabili árið áður þegar þau voru 98.

Af þessum 49 fyrirtækjum voru 10 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 6 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, 12 í einkennandi greinum ferðaþjónustu  og 21 í öðrum atvinnugreinum.

Fyrirtæki sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fyrsta ársfjórðungi 2021 höfðu um 387 launamenn að jafnaði árið áður sem er um 57% fækkun frá fyrsta fjórðungi 2020 þegar launamenn gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári voru 897.

Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota á fyrsta ársfjórðungi minni en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum atvinnugreinaflokkum. Í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð var launafólk á fyrra ári um 88 sem er 72% fækkun milli ára og í einkennandi greinum ferðaþjónustu var fjöldinn um 84 eða 36% færri.