Talsverð aukning varð í verslunarhúsnæði á Íslandi á síðasta ári. Verslunarrými á landinu taldi 1.241.086 fermetra árið 2013, sem er 31.309 fleiri fermetrar en árið 2012. Aukningin nemur því 2,6%.
Þetta kemur fram í nýrri Árbók verslunarinnar , en þar segir að aukningin milli ára sé mun meiri en tvö undanfarin ár. Aukningin í verslunarrými nam 1% árið 2012 og 0,6% árið 2011. Undanfarin áratug hefur stækkun verslunarhúsnæðis verið í kringum 3% að meðaltali á ári.
Verslunarrými á höfuðborgarsvæðinu jókst um 3,2%, samanborið við 1,1% á landsbyggðinni, en rúmlega 72% alls verslunarhúsnæðis á Íslandi er á höfuðborgarsvæðinu.
Mest hlutfallsleg aukning verslunarrýmis árið 2013 frá fyrra ári var í Borgarbyggð þar sem fermetrum verslunarrýmis fjölgaði um 11,7%. Samkvæmt Árbókinni má líklega skýra aukninguna með endurbótum á eldra verslunarhúsnæði N1 og Skeljungs, ásamt breyttri skráningu vegna nýs deiliskipulags.