Akoma Exista eftir skatta á síðasta ársfjórðungi 2007 var neikvæð um 295,6 milljónir evra (ISK 26 milljarðar). Afkoman er undir meðalspá greiningardeilda sem hljóðaði upp á 168 milljóna evra tap. Í frétt félagsins kemur fram að miklar sviptingar á fjármálamörkuðum höfðu veruleg áhrif á virði eigna. Umtalsverður einskiptiskostnaður féll til við það að starfsemi á sviði eigin viðskipta og stöðutöku var lögð niður og eignasöfn seld.

Hagnaður eftir skatta á síðasta ári nam 573,9 milljónum evra (ISK 50 milljarðar) og jókst um 34.5%. Hagnaður á hlut 5,11 evrur (ISK 448) og jókst um 18.8%. Arðsemi eigin fjár var 23% á ársgrundvelli.

Heildareignir námu 8 milljörðum evra (ISK 731 milljarði) í lok 2007 og jukust um 82% á árinu.  Eigið fé var 2,4 milljarðar evra (ISK 216 milljarðar) og jókst um 25% á fyrstu níu mánuðum. Eiginfjárhlutfall var 29,6% í lok tímabilsins.

Exista kynnir í dag breytingar á skipulagi félagsins. Markmið breytingannna er að undirstrika enn frekar fjármálaþjónustu sem kjarnastarfsemi félagsins. Tvö ný stoðsvið, Rannsóknir og Fjárstýring, hafa verið sett á laggirnar, en eigin viðskipt hafa verið lögð niður.

Í lok janúar 2008 hafði Exista aðfang að tryggu lausafé sem nemur endurfjármögnunarþörf félagsins vel fram til ársins 2009, eða í 69 vikur.

„Á tímum mikilla sviptinga á fjármálamörkuðum nýtur Exista góðs af traustum rekstri dótturfélaga og hlutdeildarfélaga. Óvenjulega skarpt verðfall á mörkuðum hefur reynt á undirstöður félagsins og hefur Exista sýnt mikinn styrk við þær aðstæður. Við erum undir það búin að takast á við ytri sveiflur og högum rekstri félagsins og áhættustýringu í samræmi við það. Lausafjárstaða er mjög góð og undirstöður eru traustar. Stjórnendur félagsins gera sér grein fyrir að hluthafar okkar hafa fundið fyrir miklum sveiflum í verði hlutabréfa að undanförnu, eins reyndar fjárfestar víða um heim. Hins vegar teljum við að Exista hafi skapað sér afar athyglisverða stöðu á norrænum fjármálamarkaði sem feli í sér mikil tækifæri fyrir félagið til framtíðar," segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður í tilkynningu.