Engar eignir fundust í þrotabúi BOM fjárfestingar ehf. þegar búið var tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. BOM fjárfestingar var í eigu Magnúsar Þorsteinssonar, sem var sjálfur úrskurðaður gjaldþrota í maí 2009.

Magnus keypti félagið af Baldri Guðnasyni, fyrrverandi forstjóra Eimskips, og Steingrími Halldóri Péturssyni í nóvember 2007. Félagið átti 3,75% hlut í Icelandic Group. Magnús Þorsteinsson var á þeim tíma stór hluthafi og stjórnarformaður Icelandic Group.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í desember 2009 þá ætlaði Fjármálaeftirlitið að kanna hvort Magnús Þorsteinsson og stjórnendur Straums-Burðaráss brutu lög um verðbréfaviðskipti þegar bankinn lánaði honum til að kaupa BOM fjárfestingar ehf. í nóvember 2007.

Í fréttum Sjónvarpsins 4. desember árið 2009  var sagt frá vitnisburði Magnúsar vegna skuldamáls, sem þrotabú Straums höfðaði gegn honum í Héraðsdómi Norðurlands til greiðslu á sjálfsskuldarábyrgð upp á 930 milljónir króna. Í fréttinni sagði: "Hann [Magnús Þorsteinsson] sagði að starfsmenn Straums hefðu fullvissað sig um að ekki yrði gengið persónulega að honum vegna ábyrgðarinnar og hann hafi skrifað upp á hana af greiðasemi við eiganda bankans, sem þá var Björgólfur Thor Björgólfsson viðskiptafélagi hans. Með ábyrgðinni hefði bankinn komið sér undan yfirtökuskyldu á Icelandic Group."