Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta nam 2,6 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár var 5,9% á ársgrundvelli. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 2,7 milljarðar króna og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 var 6,7% á ársgrundvelli. Bankinn greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Hreinar vaxtatekjur voru 8,2 milljaðrar króna sem er 5,3% hækkun á milli ára og var vaxtamunur 2,8%. Hreinar þóknanatekjur voru 3,2 milljarðar króna sem er 15,8% hækkun frá sama tímabili í fyrra.

Virðisbreyting útlána var neikvæð um 919 milljónir króna á tímabilinu samanborið við að vera jákvæð um 88 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Stjórnunarkostnaður jókst um rúm 3,5% á milli ára og nam 7,1 milljörðum króna.

Kostnaðarhlutfall samstæðu á tímabilinu var 62,6% samanborið við 69,8% á sama tímabili í fyrra, á meðan kostnaðarhlutfall móðurfélags var 58,1% sem er lítillega yfir 55% langtímamarkmiði bankans.

Útlán til viðskiptavina jukust um 3,2% (26,9 milljarðar króna) og námu 874 milljörðum króna í lok mars. Ný útlán á fyrstu þremur mánuðum ársins voru 51,3 milljarðar króna og dreifðust vel á milli viðskiptaeininga bankans. Innlán frá viðskiptavinum hækkuðu um 5,6% eða 32,3 milljarða króna frá áramótum og námu 611 milljörðum króna í lok mars.

Í tilkynningunni segir að lausafjárstaða bankans sé sterk bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og vel umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið. Eiginfjárhlutföll séu sterk og í takti við langtímamarkmið bankans.

Hagnaður í takti við áætlanir

„Fyrsti ársfjórðungur einkenndist af áframhaldandi kröftugum útlánavexti og myndarlegri aukningu í vaxta- og þóknanatekjum og nam hagnaður bankans 2,6 ma. kr. sem er í takti við áætlanir.

Staða bankans er afar traust, lausafjárhlutföll í erlendum og innlendum gjaldmiðlum yfir innri mörkum og kröfum eftirlitsaðila og eiginfjárhlutföll í takt við langtímamarkmið. Lánasafnið er sterkt og koma gæði þess vel út í alþjóðlegum samanburði.

Það gladdi mig hversu vel síðasta skuldabréfaboð bankans upp á 300 milljónir evra gekk á erlendum mörkuðum og það er ljóst að bankinn og íslenskt efnahagslíf njóta áframhaldandi trausts erlendra fjárfesta.

Íslandsbanki hélt áfram að kynna nýjar stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini sína í byrjun árs 2019. Sem dæmi hafa lausnirnar „Lán í appi" og „Velkomin í viðskipti" hlotið frábærar viðtökur viðskiptavina og er bankinn rétt að byrja á þessari vegferð.

Ný skýrsla bankans um ferðaþjónustu var kynnt í síðustu viku og hefur hún hlotið mikla athygli enda er ljóst að þjóðfélagið á mikið undir að vel takist til með þessa mikilvægu atvinnugrein.

Ný stefna bankans var kynnt fyrir starfsfólki í lok mars og var hún unnin með alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu Boston Consulting Group. Ég er sannfærð um að ný stefna muni gera bankann enn betur í stakk búinn til að takast á við breyttan bankaheim og munum við leggja áherslu á innleiðingu hennar á næstunni.

Framhaldið er spennandi fyrir okkur í Íslandsbanka þar sem við ætlum okkur að vera hreyfiafl til góðra verka og hafa jákvæð og uppbyggileg samfélagsáhrif en jafnframt halda áfram að veita viðskiptavinum okkar bestu bankaþjónustu á Íslandi,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka í tilkynningunni.