Sjóðastýringafyrirtækið Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka hagnaðist um 262 milljónir króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 154 milljónir frá sama tíma í fyrra. Tekjur námu 912 milljónum á tímabilinu og jukust um 28,9%. Rekstrargjöld námu 584 milljónum og jukust um 2% milli ára.

Hagnaður sjóða í stýringu hjá Íslandssjóðum sem rennur til viðskiptavina í formi ávöxtunar nam 8.010  milljónum króna og ríflega fimmfaldaðist á milli ára. Eignir í stýringu hjá félaginu námu 298 milljörðum í lok júní. 22 verðbréfa- og fjárfestingasjóðir voru í rekstri hjá félaginu í lok tímabilsins og nam hrein eign þeirra 165 milljörðum króna samanborið við 148 milljarða í árslok 2018.

Í tilkynningu vegna uppgjörsins segir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:

„Rekstur Íslandssjóða er áfram sterkur og góð ávöxtun sjóða og eignasafna hefur skilað sér til viðskiptavina okkar á þessu ári. Mikill meðbyr hefur skilað Íslandssjóðum aukinni markaðshlutdeild á sjóðamarkaði og nýjum sjóðum hefur verið sérstaklega vel tekið af sparifjáreigendum. Ber þar helst að nefna Græn skuldabréf en mikil áhersla er lögð á ábyrgar fjárfestingar hjá Íslandssjóðum og horfum við þar sérstaklega til umhverfis- og loftslagsmála.“