Alls greindust 27 kórónuveirusmit innanlands í gær en ekkert við landamærin. Af þeim voru 25 í sóttkví en þetta kom fram á upplýsingafund almannavarna sem stendur nú yfir. Því greindust alls 40 manns með Covid um helgina. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúa almannvarna, segir að öll smitin tengjast meira og minna leikskólanum Jörfa.

Nú eru 97 í ein­angr­un, 386 í sótt­kví og 922 í skimun­ar­sótt­kví. Alls liggja þrír á sjúkra­húsi vegna Covid-19.

Alma Möller Landlæknir segir atburði helgarinnar vera vonbrigði og að breska afbrigðið sé til staðar í samfélaginu. Nú sé mikilvægt að láta ekki slá sig út af laginu og fara í sýnatöku við minnstu einkenni.