Á hluthafafundi í dag tók Íslandsbanki þá ákvörðun um greiðslu sérstaks arðs að fjárhæð 27 milljarða til hluthafa fyrir árslok 2016. Íslenska ríkið er eini hluthafi Íslandsbanka og fer Bankasýsla Ríkisins með eignarhlutinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

„Almennt viðmið bankans er að greiða 40-50% af hagnaði í arð, en í apríl voru greiddir 10 milljarðar í arð til hluthafa sem samsvarar 50% af hagnaði ársins 2015. Með arðgreiðslunni nú, hafa samtals verið greiddir 37 milljarðar í arð á árinu 2016 til íslenska ríkisins,“ segir í tilkynningunni.

Endurskipulagning eignahliðar efnahagsreiknings

Íslandsbanki hefur unnið að því að því að endurskipuleggja eignahlið efnahagsreiknings bankans. „Endurskipulagningu á lánasafni er nú lokið, vanskilahlutfall fer lækkandi og hverfandi hluti endurskipulagðra lána fer aftur í vanskil.  Þessi árangur setur bankann í flokk þeirra 25% evrópskra banka sem hafa hvað lægst vanskilahlutföll.

Með arðgreiðslunni í dag er stigið stórt skref í átt að eðlilegri fjármagnsskipan á skuldahlið efnahagsreiknings bankans. Íslandsbanki hefur viðhaldið öflugum eiginfjár- og lausafjárhlutföllum til að takast á við möguleg áhrif vegna afléttingar hafta og áföllum í rekstrarumhverfi.  Skuldastaða íslenska ríkisins, fyrirtækja og heimila í landinu hefur stórbatnað á undanförnum árum og lög um skref til afléttingu fjármagnshafta hafa verið samþykkt,“ kemur einnig fram í tilkynningunni.

Lausafjárstaðan góð

Eiginfjárhlutfall bankans eftir arðgreiðsluna verður 24,0%%, en markmið bankans er að hlutfallið sé yfir 23% sem er vel yfir 19,1% eiginfjárkröfu Fjármálaeftirlitsins. Vogunarhlutfall verður 15,7% sem sýnir hóflega skuldsetningu. Lausafjárstaða verður áfram traust og vel umfram innri viðmið og kröfur eftirlitsaðila, er tekið fram í yfirlýsingunni.

Viðunandi arðsemi af rekstri

Haft er eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, að bankinn hafi viðhaldið öflugum eiginfjár- og lausafjárhlutföllum til að mæta losun fjármagnshafta og mögulegum áföllum í rekstrarumhverfi sínu. „Jákvæð þróun í íslensku efnahagslífi og skynsöm skref til afléttingu hafta, skapa nú tækifæri fyrir Íslandsbanka að ná fram hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni sínum.

Þrátt fyrir afar hátt eigið fé, hefur Íslandsbanki haldið áfram að skila viðunandi arðsemi af undirliggjandi rekstri.  Aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum er gott og bankinn nú að fullu fjármagnaður á markaði. Endurskipulagningu á lánasafni er lokið. Ábyrg stefna í útlánum hefur aukið gæði lánasafns og vanskil fara lækkandi. Rekstrarumhverfi á Íslandi er hagfellt og lausafjárstaða bankans afar góð. Íslandsbanki er því vel í stakk búinn til að greiða sérstakan arð til eigenda sinna," segir Birna.