Tuttugu og átta síðna grein um Ísland er meðal efnis í nýjasta tölublaði hins víðlesna tímarits National Geographic Magazine. Tímaritið kemur út í um 5 milljónum eintaka og er dreift um allan heim.

Greinin fjallar um þær breytingar sem hafa orðið á Íslandi síðustu öldina, m.a. orkumálin, álverin, og hvernig þessi litla þjóð hefur skapað sér lífskjör meðal þess besta sem gerist.

„Í heildina er þetta mjög jákvæð grein fyrir Ísland, mikið myndskreytt og er m.a. þriggja síðna “fold-out” frá Mývatnssveit,” er haft eftir Einari Gústavssyni, forstöðumanni Ferðamálastofu í Norður-Ameríku á vefsetri Ferðamálastofu.

Að sögn Einars kostar heilsíðuauglýsing í tímaritinu um 12 milljónir króna og geti menn síðan skemmt sér við að meta auglýsingagildi síðnanna 28 út frá þeim forsendum.