Í nýliðnum ágústmánuði seldust 581 nýr fólksbíll, eða 27,7% færri en á sama tíma fyrir ári síðan þegar þeir voru 804. Samdrátturinn fyrstu 8 mánuði ársins nemur 31,4%, úr 9.123 í 6.254 nýir bílar.

Þetta kemur fram í samantekt bílgreinasambandsins, en þeir segja samdráttinn fyrst og fremst helgast af því að færri nýir bílaleigubílar seldust á tímabilinu, og nam samdrátturinn 59,7% á milli ára.

Á sama tíma dróst sala til almennra fyrirtækja aðeins saman um 15,3%, úr 1.430 bílum í 1.211 bíla, og rekur Bílgreinasambandið samdráttinn til áhrifa heimsfaldursins sem nú stendur yfir á ferðaþjónustuna.

Lítill samdráttur á sölu til einstaklinga

Til einstaklinga hafa hins vegar selst 3346 nýir fólksbílar það sem af er ári og er það einungis samdráttur upp á 4,1% miðað við sama tíma í fyrra þegar selst höfðu 3488 bílar til einstaklinga.

Bílgreinasambandið segir jafnframt að markaður með notaða bíla hafi verið mjög góður hingað til á árinu, sem rekja megi til þess að einstaklingar virðast ekki hafa látið ástandið letja sig of mikið þegar að kemur að bílakaupum.

Nýorkubílarnir komnir í meirihluta

Nýorkubílar (rafmagns, tengiltvinn, hybrid, metan) standa fyrir stórum hluta af öllum seldum nýjum bílum á þessu ári. Bæði einstaklingar og fyrirtæki sækja í auknum mæli í slíka bíla en framboð þeirra er jafnframt alltaf að aukast og því orðið auðveldara að finna bíla sem henta þörfum hvers og eins.

Það sem af er ári eru nýorkubílar 64,4% allra nýrra bíla sem einstaklingar hafa keypt en þetta hlutfall var 41,7% á sama tíma á síðasta ári. Svipaða sögu er að segja af almennum fyrirtækjum, það er af kaupum annarra fyrirtækja en bílaleiga, en þar er hlutfallið 55,8% nú miðað við 38,5% á sama tíma í fyrra.