Rúmlega 83 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í nýliðnum febrúarmánuði, samkvæmt tölum frá flugvellinum.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu en þetta er tæplega 28% fækkun  farþega á milli ára, það er miðað við febrúar í fyrra.

Farþegum á leið frá landinu hefur frá áramótum fækkað um 29% en farþegum á leið til landsins um 34,4%. Áfram- og skiptifarþegum hefur á hinn bóginn fjölgað um 8,2%.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.