Prófkjörum Pírata í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi lauk nú fyrir stundu og var Dóra Björt Guðjónsdóttir alþjóðafræðingur efst í Reykjavík, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sálfræðingur efst í Kópavogi og Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir þroskaþjálfi efst í Hafnarfirði.
Prófkjörið í Reykjavík var einungis opið fyrir meðlimi aðildarfélags Pírata í Reykjavík, og þar kusu 284, en allir Píratar á landsvísu gátu kosið í hinum tveimur sveitarfélögunum. Tóku 208 þátt í prófkjörinu fyrir Kópavog og 195 í Hafnarfirði.
Efsta fólk á lista Pírata í Reykjavík:
- 1. Dóra Björt Guðjónsdóttir, alþjóðafræðingur
- 2. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, umhverfis- og skipulagsfræðingur
- 3. Alexandra Briem, þjónustufulltrúi
- 4. Rannveig Ernudóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur
- 5. Bergþór H. Þórðarson, öryrki
- 6. Valgerður Árnadóttir, framkvæmdastjóri
- 7. Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri
- 8. Arnaldur Sigurðarson, sölumaður
- 9. Þórgnýr Thoroddsen, borgarfulltrúi
- 10. Elsa Nore, leikskólakennari
Efsta fólk á lista Pírata í Kópavogi:
- 1. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, sálfræðingur
- 2. Hákon Helgi Leifsson, þjónustu- og sölufulltrúi
- 3. Ásmundur Alma Guðjónsson, hugbúnaðarsérfræðingur
- 4. Ragnheiður Rut Reynisdóttir, leiðbeinandi á leikskóla
- 5. Matthías Hjartarson, meistaranemi í rafmagnsverkfræði
Efsta fólk á lista Pírata í Hafnarfirði:
- 1. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir, þroskaþjálfi
- 2. Kári Valur Sigurðsson, pípulagningamaður
- 3. Hildur Björg Vilhjálmsdóttir, nýbökuð móðir
- 4. Hallur Guðmundsson, samskipta- og miðlunarfræðingur
- 5. Haraldur R. Ingvason, líffræðingur
- 6. Ragnar Unnarsson, ferðamálaráðgjafi
- 7. Hlynur Guðjónsson, vélvirki