Birta lífeyrissjóður lækkaði á dögunum breytilega óverðtryggða vexti sjóðfélagalána sinna í 2,85%, sem eru mun lægri vextir en hjá bjóðast hjá öllum öðrum lánveitendum hér á landi, og raunar lægri en sumir verðtryggðir breytilegir vextir.

Ekki var þó um meðvitaða ákvörðun um þessa ákveðnu vaxtaprósentu að ræða, heldur hefur reglan síðustu þrjú ár hjá sjóðnum verið sú að breytilegir óverðtryggðir vextir eru einfaldlega stýrivextir Seðlabankans að viðbættu 1,1% álagi.

Stýrivextir
Stýrivextir
© vb.is (vb.is)

Þótti hæfilegt viðmið á sínum tíma
Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, segir hafa verið ómögulegt að sjá nýliðna atburði fyrir þegar ákvörðunin um regluna var tekin á sínum tíma. Stýrivextir hafi þótt hæfilegt viðmið þá, en deila megi um hvort þeir eigi jafn vel við nú, enda hefur reynt töluvert á samband stýrivaxta og markaðsvaxta síðustu misseri.

„Þetta kemur sér auðvitað vel fyrir þá sem eru með þessa vexti, en þeir eru afar kvikir. Við veltum því stundum fyrir okkur hvernig sjóðfélagar muni bregðast við ef vextir hækka eins hratt og mikið og þeir hafa verið að lækka upp á síðkastið,“ segir Ólafur.

Vilja ekki stökkva til vegna tímabundinna aðstæðna
Ólafur segir óverðtryggðu breytilegu vextina vissulega lága í samanburði við samkeppnisaðila eins og staðan er í dag, og meginskylda sjóðsins sé að ávaxta peninga sjóðfélaga eins vel og hægt er, að teknu tilliti til áhættu. Hins vegar verði að horfa til þess að afar stutt sé síðan vextirnir lækkuðu.

„Þetta er mjög stuttur tími sem þessi staða hefur verið uppi, og stjórn endurskoðar reglulega viðmiðið með tilliti til þess hvort vextirnir samræmast umboðsskyldu. Það er einfaldlega of stuttur tími liðinn til að fara að efast um hvort skyldan sé uppfyllt á þessu stigi,“ segir hann.

„Það er markmið okkar að vaxtakjörin séu sem skiljanlegust og fyrirsjáanlegust. Við viljum ekki stökkva til eftir nokkra mánuði og breyta öllu vegna tímabundinna aðstæðna.“

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .