Í júní 2009 voru 95 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 92 fyrirtæki í júní 2008, sem jafngildir rúmlega 3% fjölgun milli ára samkvæmt samantekt  Hagstofunnar. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot eða 23 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 20 í heild- og smásöluverslun.

Fyrstu 6 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 508 en fyrstu sex mánuði ársins 2008 voru 393 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir rúmlega 29% aukningu milli ára.