Mark Zuckerberg og eiginkona hans Priscilla Chan, ætla sér að gefa ríflega 3 milljarða Bandaríkjadala til verkefna sem tengjast greiningum og lækningum á alvarlegum sjúkdómum. Hjónin ætlar sér að starfa náið með læknum, vísindamönnum og háskólum, til þess að þróa ný tæki, tól og aðferðir.
Fyrsta verkefnið sem þau ætla sér að styrkja mun hljóta 600 milljóna dala styrk yfir tíu ára tímabil. Verkefnið kallast Biohub, en þar geta sérfræðingar unnið sameiginlega að lausnum við flóknum vandamálum. Biohub er einnig stutt af Standford University, University of Caflifornia og UC Berkeley.
Hjónin ætlar sér einnig að gefa 99% af auði sínum til góðgerðarmála. Þegar hjónin tilkynntu um ákvörðun sína í desembermánuði árið 2015, var auður þeirra metinn á rúmlega 45 milljarða Bandaríkjadala.