Um 30% heimila í landinu er með bílalán í erlendri mynt en um 12,5% eru með verðtryggt bílálán í íslenskum krónum.

Þetta kemur fram á vef ASÍ í dag en sambandið lét Capacent Gallup nýlega gera fyrir sig könnun um lánasetningu íslenskra heimila.

Þar kemur fram að langflestir eða 62% eru með verðtryggt húsnæðislán í íslenskum krónum, 10% eru með annarskonar lán og tæp 9% eru með húsnæðislán í erlendri mynt.

16% voru ekki með nein lán og er það helst fólk í yngsta og elsta aldurhópnum sem er í þeirri stöðu.

Þá kemur fram að bílalán í erlendri mynt eru algengari hjá fólki í hærri tekjuhópunum en ASÍ vekur á því athygli að húsnæðislán í erlendri mynt eru hlutfallslega algengari hjá þeim sem eru í námi en þeim sem stunda fulla vinnu.

54% telja litlar líkur á því að lenda í erfiðleikum með að ná endum saman

Einnig var spurt hversu miklar eða litlar líkur fólk telji á að það geti lent í erfiðleikum við að ná endum saman á næstunni.

54% telja litlar líkur á því en 30% telja miklar líkur á að þeir lendi í erfiðleikum og er það aukning frá því í október þegar 25% svöruðu spurningunni á þann veg.

57% þeirra sem hafa misst vinnuna telja miklar líkur á að þeir geti ekki látið enda ná saman á næstunni.  Þá telja 39% þeirra sem hafa tekjur undir 250 þúsundum miklar líkur á að þeir lendi í fjárhagsvandræðum á næstunni.

Sjá nánar vef ASÍ.