30 starfsmönnum hjá Fríhöfninni, dótturfélagi Isavia, hefur verið sagt upp störfum vegna áhrifa Covid 19. Því til viðbótar verður rúmlega 100  starfsmönnum boðið áframhaldandi starf en í lægra starfshlutfalli. Áður en gripið var til aðgerðanna í dag störfuðu 169 manns hjá Fríhöfninni. Jafnframt verða engar sumarráðningar í framlínustörfum hjá Isavia í ár vegna áhrifa Covid 19.

Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir fjárhagsstöðuna leyfa að horft sé til haustsins og félagið hafi leiðir til að hafa áhrif á ákvarðanir flugfélaga um að fljúga hingað til lands.

Ákvörðunin nú kemur til viðbótar við þær aðgerðir sem gripið var til í lok mars þegar 101 starfsmanni félagsins var sagt upp störfum vegna áhrifa kórónuveirunnar og 37 til viðbótar boðið áframhaldandi starf í lægra starfshlutfalli. Áður en áhrifa Covid 19 fór að gæta var áformað að ráða 140 manns í sumarafleysingar hjá Isavia. Ekki eru fyrirhugaðar frekari aðgerðir hjá móðurfélagi Isavia og dótturfélögunum Isavia ANS og Isaiva Innanlands að svo stöddu segir félagið.

Þorgerður Þráinsdóttir.
Þorgerður Þráinsdóttir.

„Tekjur félagsins hafa dregist saman um 98 prósent,“ segir Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar sem segir að frá upphafi faraldursins hefur verið lögð  áhersla á að verja störf hjá hinu opinbera félagi eins og hægt væri.

„Um síðustu mánaðamót var tekin sú ákvörðun að segja ekki upp föstu starfsfólki en ráða ekki í sumarstörf hjá Fríhöfninni. Málin hafa hins vegar þróast þannig að nú er útlit fyrir að flugumferð muni verða afar takmörkuð næstu mánuði og tímabilið þar sem áhrifa Covid 19 gætir verði lengra en vonast var til.“

Sveinbjörn segir að óvissan um framhaldið í flugtengdum rekstri sé enn afar mikil.

„Ekki er hægt að útiloka að það þurfi að grípa til frekari aðgerða síðar. Við fylgjumst áfram vel með þróun mála, þeim ákvörðunum sem stjórnvöld um allan heim taka varðandi opnun landamæra og því sem flugfélög ákveða að gera í framhaldinu. Við höfum lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að við verðum reiðubúin til að taka við flugumferð þegar þar að kemur.“ segir Sveinbjörn.

„Þá höfum við einnig leiðir til að hafa áhrif á ákvarðanir flugfélaga þegar kemur að því að hefja flug til og frá Íslandi á ný. Við erum í þeirri stöðu fjárhagslega að geta enn sem komið er leyft okkur að horfa til haustsins en ekki einungis til næstu vikna eða örfárra mánaða.“