Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi í dag að 300 milljóna króna greiðslur við upphaf starfs eða starfslok væru dæmi um glerhús fáránleikans á litla Íslandi.

„Ég fagna því ef bankakerfið er að átta sig á því að svona launataka gengur ekki upp hér,“ sagði hann.

Guðni var þarna að fjalla um erfiðleikana í efnahagslífinu.

Hann sagði jafnframt að miklar viðsjár blöstu við íslensku útrásinni. Athafnamenn Íslands ættu erfitt - ekki síst bankar og fjármálafyrirtæki. „Þar eru auðvitað verst sjálfskaparvítin: Offar og ofurlaun, lúxus og bruðl sem hefur einkennt síðustu árin. Þá er samúð almennings [...] töluvert fjarri þegar erfiðleikar blasa við.“