Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 24. júlí til og með 30. júlí 2015 var 301. Þar af var 231 samningur um eignir í fjölbýli, 63 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 10.641 milljón króna og meðalupphæð á samning 35,4 milljónir króna. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrá .

Á sama tíma var 19 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum . Þar af voru 11 samningar um eignir í fjölbýli og 8 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 431 milljón króna og meðalupphæð á samning 22,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 272 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 249 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,7 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.