Félagið Greenwater ehf., félag sem á meðal annars verslanirnar Betra Bak, Dorma og Húsgagnahöllina, hagnaðist um rúmar 307 milljónir á síðasta rekstrarári. Eignir samstæðunnar námu 1.353 milljónum í lok síðasta rekstrarárs og eigið fé þess tæpar 419 milljónir. Ársreikningurinn nær til tímabilsins 1. mars 2016 til 28. febrúar 2017.

Í lok árs 2015 var ákveðið að breyta rekstrarári samstæðunnar úr almanaksárinu og er fyrra rekstrarár því 14 mánuðir, frá 1. janúar 2015 til 29. febrúar 2016. Rekstrartekjur félagsins jukust úr 2.656 milljónum í 2.853 milljónir og hagnaður sem fyrr segir rúmar 307 milljónir, samanborið við tæpar 168 milljónir á fyrra tímabili. Skattur af hagnaði var um 80 milljónir á síðasta rekstrarári, samanborið við 43 milljónir á fyrra tímabili. Stjórn félagsins leggur til að hagnaður ársins verði yfirfærður til næsta árs.