61 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nóvember síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 14.400 fleiri en í nóvember á síðasta ári. Aukningin nemur 31% milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálstofu en þar segir jafnframt að ferðamenn hafa aldrei mælst fleiri í nóvember frá því að mælingar hófust.

Um 79% ferðamanna í nóvember voru af tíu þjóðernum. Bretar voru langfjölmennastir eða 32,3% af heildarfjölda en næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 16,0% af heild. Næstir hvað fjölda varðar voru Norðmenn (5,4%), Þjóðverjar (4,8%), Danir (4,7%), Kanadamenn (4,3%), Svíar (3,8%), Frakkar (3,8%), Hollendingar (1,9%) og Japanir (1,7%).

Bretum og Bandaríkjamönnum fjölgar mest

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bretum og Bandaríkjamönnum mest milli ára en 4.111 fleiri Bretar komu í nóvember í ár en í sama mánuði í fyrra og 2.402 fleiri Bandaríkjamenn. Þessar tvær þjóðir báru að stórum hluta uppi aukninguna í nóvember milli ára eða um 45,2% af heildaraukningu.

Það sem af er ári hafa 915.465 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 176 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 23,8% aukningu ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; N-Ameríkönum hefur fjölgað um 33,7%, Bretum um 32,0%, Mið- og S-Evrópubúum um 17,9%, og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 29,5%. Norðurlandabúum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 8,9%.