Miklar lækkanir hafa einkennt hlutabréfamarkaðinn hér á Íslandi það sem af er degi en vísitalan hefur lækkað um 3,2% og stendur nú í 5.274 stigum. Mest hefur lækkunin verið á bréfum FL Group eða um 6,11%.

Bakkavör hefur lækkað 5,27% og Dagsbrún hefur lækkað um 3,9%. Landsbankinn hefur lækkað um 3,88%.