Foss Fasteignafélag slf. hefur birt árshlutareikning fyrir tímabilið frá 1. janúar til 30. júní 2014. Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 31,7 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi. Þá námu heildareignir félagsins 5.187 milljónum króna, en félagið á og rekur fasteignir að Bæjarhálsi 1 í Reykjavík, sem m.a. hýsir starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur. Eigið fé félagsins var 1.137 milljónir króna að meðtöldu hlutafé að fjárhæð 14,9 milljóna króna.

Verðmat fasteignarinnar hækkar frá fyrra tímabili um tæpa 71 milljón króna.