Á morgun, sumardaginn fyrsta, er í tíunda sinn úthlutað styrkjum úr sjóðnum Vildarbörn, styrktarsjóði Icelandair og viðskiptavina félagsins.

Markmið sjóðsins, sem nú fagnar fimm ára afmæli, er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður tækifæri til þess að fara í draumferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Nú hafa 210 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Að þessu sinni hlutu 32 börn og fjölskyldur þeirra styrk úr sjóðnum.

Í styrknum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa mörg barnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með þrennskonar hætti. Í fyrsta lagi með beinu fjárframlagi Icelandair. Í öðru lagi með frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af vildarpunktum sínum. Í þriðja lagi er sjóðurinn fjármagnaður með söfnun afgangsmyntar um borð í flugvélum Icelandair.

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, sem hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair.

Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og formaður stjórnar hans er Sigurður Helgason fyrrum forstjóri félagsins. Landsbankinn er fjárgæsluaðili sjóðsins.