Unnið er að stækkun þriggja hótela við Laugaveg í Reykjavík og tvö til viðbótar eru í byggingu. Að loknum framkvæmdunum öllum munu 325 hótelherbergi bætast við á götuna. Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu .
Þar kemur fram að hótelin þrjú sem verða stækkuð séu Hótel Alda, CenterHotel Skjaldbreiður og Centerhotel Miðgarður. Alls fjölgar herbergjum á hótelunum þremur um 150. Þá er nýtt 60 herbergja hótel við Laugaveg 34a-36 í byggingu auk þess sem hótelkeðjan Hilton International mun opna 115 herbergja hótel á Hljómalindarreitnum.
Þá segir í Morgunblaðinu að stórt hótel sé í undirbúningi í nágrenninu sem ekki hafi verið sagt frá í fjölmiðlum. Fjárfestar muni greina frá því verkefni í haust.