Mikill samdráttur í flugumferð og farþegafjölda hefur leitt til verulegs tekjutaps Keflavíkurflugvallar ohf. og stefnir í 25% samdrátt á þessu ári. Í tilkynningu félagsins kemur fram að 33 starfsmönnum hefur verð sagt upp en 25 þeirra boðin 50% vinna.
Í tilkyninguni kemur fram að gripið var til sparnaðaraðgerða í flugvallarrekstri síðastliðið haust svo sem kostur er miðað við að fyllsta flugöryggis sé gætt. Ákveðið er að fresta ráðgerðum viðhaldsverkefnum og stefnt að rúmlega 10% lækkun launakostnaðar með minnkaðri yfirvinnu, lækkun starfshlutfalls, tilfærslu og uppsögn 8 starfsmanna. Fríhöfnin ehf. sem er dótturfélag Keflavíkurflugvallar ohf. greip til sama ráðs s.l. haust með fækkun 25% starfsmanna miðað við sama tíma árið áður. Nú starfa samtals um 400 manns hjá félögunum.
Laun stjórnarmanna Keflavíkurflugvallar hafa verið lækkuð um 10% og forstjóri og staðgengill forstjóra hafa samþykkt samsvarandi lækkun á launum sínum. Á næstunni verður unnið að endurskoðun og samræmingu starfa á stjórnunarsviðum.Almennt verður ekki ráðið í störf sem losna hjá félaginu og er stefnt að því að starfmenn í hlutastarfi ganga fyrir með auknu starfshlutfalli, t.d. þegar sumarumferð hefst. Hlutastarfsmenn eiga rétt á bótum úr atvinnutryggingarsjóði þannig að heildartekjuskerðing hvers og eins mun að jafnaði nema um 10% fyrstu mánuðina. Áætlað er að ofangreindar ráðstafanir skili 200 miljón króna rekstrarsparnaði á ársgrundvelli.
Umræddar ráðstafanir taka gildi 1. febrúar og hafa þegar verið kynntar hlutaðeigandi starfsmönnum og stéttarfélögum, segir í tilkynningu frá Keflavíkurflugvelli ohf.