Borgarstjórn hefur samið við fasteignafélagið Festir ehf. um uppbyggingu 332 íbúða á Gelgjutanga.

Borgarráð hefur samþykkt þrjá samninga sem tengjast fyrirhugaðri uppbyggingu á þessu svæði í Vogabyggð, en Festir kaupir eina lóð af borginni fyrir 326 milljónir auk þess að samþykkja að taka þátt í listskreytingum í hverfinu.

Allt að 1.300 íbúðir á svæðinu

Gert er ráð fyrir að uppbygging á allt að 1.300 íbúðum hefjist á svæðinu á fyrri hluta næsta árs., en í samningunum er Vogabyggð 1 skipt upp í fimm lóðir samkvæmt deiliskipulagstillögu sem er í vinnslu.

Samningarnir þrír kveða á um uppbyggingu á svæði 1 á Gelgjutanga en á því svæði verða byggð fimm fjölbýlishús. Áætlað er að 332 íbúðir rísi á lóðunum segir í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Samkvæmt samningi við Festir ehf. sem aðilar skrifuðu undir í dag mun Reykjavíkurborg fá tvær lóðir til ráðstöfunar en Festir ehf. þrjár lóðir til uppbyggingar.

Fá 326 milljónir fyrir lóð

Reykjavíkurborg framselur aðra lóðina til Festis ehf fyrir tæpar 326 mkr. Verðið er grundvallað á mati tveggja löggiltra fasteignasala.

Þá er samið um að Festir ehf. taki þátt í listskreytingum  í Vogabyggð. Loks kveður samningurinn um nauðsynlegan flutning á skólpdælustöð á Gelgjutanga.

Faxaflóahafnir fá 40 milljónir

Þriðji samningurinn er á milli Faxaflóahafna sf og Reykjavíkurborgar um kaup borgarinnar á meginhluta Gelgjutanga sem nú er skilgreindur sem hafnarsvæði. Kaupverðið er 40 mkr.

Vinna við deiliskipulagsgerð fyrir Vogabyggð 1 er á lokastigi og ganga áætlanir út á það að uppbygging hefjist á svæðinu fyrri hluta árs 2018.

Áætlanir gera ráð fyrir 1.100 – 1.300 íbúðum í allri Vogabyggð.

Örnefni frá landnámsöld

Til gamans má geta að Gelgjutangi er fornt örnefni en sagan hermir að Ketilbjörn hinn gamli landnámsmaður hafi lent skipi sínu Elliða við tangann og bundið þar landfestar.

Gelgja er fornt orð fyrir festi. Tanginn fékk því nafnið Gelgjutangi en árnar sem renna í voginn voru nefndar Elliðaár eftir skipi Ketilbjarnar.