Skilanefnd Kaupþings hefur hafið endurgreiðslur til innstæðueigenda bankans í Þýskalandi og hefur þegar sent fyrirmæli um endurgreiðslu innstæðna til um 20.000 viðskiptavina. Endurgreiðslur innstæðna munu halda áfram á næstu dögum og er vonast til að þær berist til ríflega 34.000 viðskiptavina Edge á næstu vikum segir í tilkynningu.

Í tilkynningu kemur fram að skilanefndin tilkynnti um miðjan apríl að nægt fjármagn væri fyrir hendi til að greiða út allar innstæður Edge í Þýskalandi. Um miðjan maí var ljóst að endurgreiðsluferlið gæti hafist en það fólst m.a. í því að öllum innstæðueigendum bankans í Þýskalandi var sent bréf frá Íslandi og þeir gátu í framhaldinu staðfest reikningsupplýsingar til að taka við endurgreiðslunni.

Alls sendi bankinn bréf til rúmlega 34 þúsund innstæðueigenda og hefur nú þegar fengið staðfestingu til baka frá stærstum hluta þeirra. Þegar hafa um 20 þúsund staðfestingar verið skráðar og greiðslufyrirmæli vegna þeirra verið send til Þýskalands. Af tæknilegum ástæðum er endurgreiðsluferlið tekið í skrefum sem þýðir að fyrstu innstæðueigendur munu fá endurgreitt á næstu dögum og aðrir í framhaldinu.

58 milljarðar greiddir út

Heildargreiðsla til innstæðueigenda Kaupþing Edge í Þýsklandi mun nema rúmlega 320 milljónum evra sem samsvarar um 58 milljörðum króna. „Við höfum unnið sleitulaust að málinu undanfarið hálft ár og erum ánægð með að fyrstu greiðslurnar séu farnar að berast til Þýskalands. Það hefur margt tafið þetta ferli og það hefur verið flóknara en nokkurn óraði fyrir að klára þetta mál. Þegar endurgreiðslum til innstæðueigenda í Þýskalandi lýkur hafa allar forgangskröfur innstæðueigenda í útbúum Kaupþings verið greiddar án þess að króna falli á íslenska skattgreiðendur,“ segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings banka í tilkynningu.