Á árinu 2004 var 3.985 þús. evru tap (346 millj. kr) á rekstri SÍF hf. Hagnaður á árinu 2003 var 639 þús. evrur.
Að teknu tilliti til sérstakrar gjaldfærslu í Frakklandi og gjaldfærslu í tengslum við kaup á Labeyrie Group var hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 12.231 þús. evrur (1.063 millj. kr.) á árinu 2004 samanborið við 14.033 þús. evrur árið 2003. Skv. ársreikningi er hins vegar tap fyrir afskriftir og fjármagnsliði 6.522 þús. evra.
Hagnaður SÍF á fjórða ársfjórðungi 15,8 milljónir evra. Sölutekjur aukast um 15,6% milli ára og framlegð félagsins eykst milli ára.
Veltufé til rekstrar var 20.769 þús. evrur (1.805 millj. kr.) árið 2004 en veltufé frá rekstri 3.952 þús. evrur árið 2003.
Sölutekjur samstæðunnar aukast á milli ára um 15,6% og voru 674,5 milljónir evra samanborið við 583,3 milljónir evra árið 2003. Þess ber að geta að vegna sölu á dótturfélagi SÍF hf., Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum, hafa sölutekjur verið lækkaðar um 115,2 milljónir evra á árinu 2004 og jafnframt til samanburðar árið 2003 um 124,4 milljónir evra. Söluvelta Labeyrie Group er inn í bókum félagsins frá og með 17. desember 2004 eða sem nemur 35,7 milljónum evra.
Framlegð er 8,4% árið 2004 samanborið við 7,37% árið 2003.
Afskriftir eru nú 15.363 þús. evrur saman borið við 7.724 þús. evrur árið 2003. Nokkrar skýringar er á hækkun afskrifta á milli ára. Lyons Seafoods er nú í bókum félagsins allt árið 2004 sem var ekki árið 2003. Afskrifuð er að fullu viðskiptavild vegna SIF Canada. Í samræmi við IFRS staðla hafa fjármögnunarleigusamningar nú verið færðir til eignar og skuldar. Þetta innifelur að afskriftir hækka af þeim sökum. Að síðustu er Labeyrie Group nú í bókum félagsins og að sama skapi Iceland Seafood Corporation ekki.
Nettó fjármagnsgjöld eru 1.238 þús. evrur samanborið við 5.080 þús. evrur á sama árið 2003. Meginskýringin er annars vegar söluhagnaður SH bréfa tekjufærist sem fjármunatekjur en hins vegar er gjaldfærður lántökukostnaður vegna endurfjármögnunar SIF samstæðunnar.