Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,5% í september 2021, árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka 79,5% og hlutfall starfandi 75,6%. Þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands .

Þar segir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hafi ekki verið lægra síðan í mars 2020 þegar það mældist 2,8%. Eins og flestir muna barst Covid-19 faraldurinn hingað til lands um svipað leyti og hafði í för með sér stóraukið atvinnuleysi.

„Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi lækkaði um 1,5 prósentustig á milli mánaða á meðan árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur dregist saman um 0,9 prósentustig síðustu sex mánuði og leitni hlutfalls starfandi hefur aukist um 2,4 prósentustig,“ segir í frétt Hagstofunnar um rannsóknina .

Í vinnumarkaðsrannsókninni kemur jafnframt fram að áætla sé að samkvæmt mælingu án árstíðaleiðréttingar sé áætlað að 207.900 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í september 2021 sem jafngildii 78,2% atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu hafi 202.000 verið starfandi og 5.900 atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda hafi verið 75,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 2,8%. Starfandi hafi að jafnaði unnið 35,6 stundir á viku í september síðastliðnum. Samanburður við september 2020 sýni að atvinnuleysi hafi dregist saman um 1,6 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi aukist um 2,2 prósentustig.

„Í september 2021 er áætlað að 26.200 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 12,1% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 22,5% atvinnulausir, 28,4% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 7,5% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 41,6% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við september 2020 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 1,4 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur nánast staðið í stað síðustu þrjá mánuði en lækkað um 0,4 prósentustig á síðustu sex mánuðum,“ segir í frétt Hagstofunnar.