Reykjagarður hf., dótturfélag SS, tapaði 95 milljónum króna á síðasta ári og jókst tap félagsins um 71 milljón milli ára. Fyrirtækið sinnir framleiðslu og sölu á alifuglum undir vörumerkjunum Holta og Kjörfugl.

Tekjur félagsins námu 3,5 milljörðum og jukust um 240 milljónir milli ára. EBITDA nam 158 milljónum króna og dróst saman um 17 milljónir milli ára. Eignir félagsins námu 3,1 milljarði króna í árslok og jukust um 419 milljónir milli ára. Eiginfjárhlutfall var 36% í lok ársins.