Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dagana 29. nóvember til 5. desember nam 3,46 milljörðum króna. 107 kaupsamningum var þinglýst, þar af var 81 samningur um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 5 samningar um annarskonar eignir en íbúðarhúsnæði.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 29. nóvember til og með 5. desember 2013 var 107. Þar af var 81 samningur um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.463 milljónir króna og meðalupphæð á samning 32,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 8 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 224 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 11 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 7 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 290 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 60 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20 milljónir króna.