Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 4. júní til og með 10. júní 2004 var 209. Þar af voru 168 samningar um eignir í fjölbýli, 33 samningar um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 3.554 millj. kr. og meðalupphæð á samning 17,0 millj. kr.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og enginn samningur um annars konar eignir. Heildarveltan var 120,2 millj. kr. og meðalupphæð á samning 13,4 millj. kr. Þetta kemur fram á fréttavef Fasteignamatsins.