Manni frá Newport í Englandi brá heldur betur í brún þegar hann var rukkaður um 180.000 pund, eða sem nemur um 35 milljónir íslenskra króna, fyrir pitsu hjá Domino's á dögunum. Maðurinn átti að greiða 17,99 pund fyrir pitsuna, eða sem nemur 3500 íslenskum krónum, en var rukkaður um179.932,32 pund.

Um var að ræða mistök hjá afgreiðslumanninum sem hafði óvart bætt leyfiskóðanum 3232 við upphæðina. Um leið og upp komst um misskilninginn fékk maðurinn upphæðina endurgreidda auk 20.000 króna í bætur frá Domino's.